-
-
Hvað er í kassanum ?Gjafakassinn frá RÖ er 29cm x 25cm . Hann inniheldur leðursnúru, klippur, töng og padda. Fluguveski og 15 flugur frá RÖ . Viðarkassinn er til í tveimur litum. -
Handgerðir gjafakassar úr íslensku birki
Veldu fallega handgerðar veiðivörur frá Reiðu öndinni og gefðu í handgerðum gjafakassa úr íslensku birki. -
Faðmur, Sarpur og Snúra saman í merktum viðarkassa frá Reiðu Öndinni, smekkleg gjöf fyrir vandláta veiðimenn. Íslenskt handverk úr leðri sem gerir veiðarnar þægilegri, allt við hendina eða jafnvel á hendi. Þetta er eitthvað sem allir veiðimenn og veiðikonur verða að eignast. Margir litir í boði í efnisvali. Einnig er möguleiki á minni og stærri einingum og tala nú ekki um sérsmíði á flugum. -
Gestur
Gestur er gestbók hægt að fá með áletrun eftir óskum. -
Gamla Breska fluguveskið
Veskið er gert úr vönduðu Coníakslituðu leðri stærð 18x22 sentimetrar klætt að hluta með foam og íslensku sauðkindinni og lokað með ól. Veskið tekur hæglega 35-50 flugur og merking er innifalin í verði. Einnig er hægt að panta í það flugur sérhnýting. -
Frosti.
Hnýtt fyrir mikin veiðigarp. Bjartur perlu búkur hvít skegg , tví skiptur blár vængur með perlu angel hár í undirvængvængur, glit í væng og spegil blár haus. Stærð 12-14 og á að vera í öllum veskjum og er góð viðbót í fluguflóru RÖ.
-
Fröken Fancy
Fröken Fancy fæst í stærðum 10,12,14 og 16. -
Fröken Fancy
Frábær fluga chartreuse litur í búk systir Arndilly Fancy og hefur reynst mér vel allt sumarið. Skemmtileg og viðbót í fluguflóru . Þríkrækja stærð 12-14. Á að vera í öllum Sörpum.
-
Fröken Fancy.
Fröken er í miklu uppáhaldi hjá mér, ein af þessu sterku flugum sem kemur mér alltaf á óvart. Cartreuse búkur blátt skegg , glit og heitur applesínugulur í haus. Stærð 12-14 og á að vera í öllum veskjum og er góð viðbót í fluguflóru RÖ.
-
Svartur Frances Hexi.
Svartur með gulum haus litli Hexi 3,8 mm fyrir króka númer 16. Þetta er sennilega sú fluga sem er nú þegar í öllum veskjum eða boxum. -
Svartur Frances Hexi.
Svartur litli Hexi 3,8 mm fyrir króka númer 16. Þetta er sennilega sú fluga sem er nú þegar í öllum veskjum eða boxum.