VERSLUN

  • Faðmur svartur með grænum perlum er handunnin mælieining eða málband sem veiðimaðurinn er með um úlnliðinn, eins konar málband sem þú getur mælt lengd fiska.

  • Karl og Kerling eru armbönd eða vinabönd frá Reiðu Öndinni og eru til í nokkrum litum og eru sérsniðið fyrir hvern og einn. Tilvalin gjöf fyrir makann, vinargjöf eða bara fyrir veiðifélagann, jú allir eru vinir í skóginum.
  • Faðmur brúnn

    Faðmur brúnn er mælieining eða málband sem veiðimaðurinn er með um úlnliðinn, eins konar armband sem þú getur mælt lengd fiska með. Mjög þægilegt í notkun og einstaklega hentugt. Faðmurinn er búinn til úr rússkinnsbandi og er með segullás. Fæst í mörgum litum. Lengd allt að 150 sentimetrar.

  • SARPUR rauðbrúnn með ól

    Sarpur er fluguveski og er málið fyrir fallegar flugur. Sarpur er leðurveski og er tilvalin gjöf fyrir hinn vandláta veiðimann. Allir veiðimenn eiga sínar uppáhalds flugur og ekkert klæðir fallegar flugur betur en Sarpurinn fyrir utan það, að þær eiga skilið að vel sé með þær sé farið. Flugan þarf jú að veiða þig fyrst áður en fiskurinn lætur plata sig. Flugur og leðurveski er málið. 100 prósent íslenskt handverk frá Reiðu Öndinni

  • Sarpur Klassík.

    Gömlu klassísku flugurnar virka alltaf, fallegar og litríkar flugur sem allir fluguveiðimenn og konur þurfa að eiga. Reiða Öndin er með nokkuð gott úrval og alltaf verið að bæta við.

  • Kría stóri Hexi.

    Kría stóri hexi 4,6 mm og litli 3,8.Hún er hnýtt með svörtu og hvítu hrossi í væng ásamt tveimur tegundum af gliti. Hexakónn rauður að hluta.
  •  Sérmerktur Faðmur.

    Faðmur er málband sem veiðimaðurinn vefur um úlnliðin á sér og ber líkt og armband. Faðmurinn er til að mæla lengd fiska . Sérmerking með nafni eða stærsta fiskinum sem tilvonandi eigandi hefur veitt. Hægt er að fá alla liti af Föðmum með sérmerkingu.

  • Silver Fancy

    Frábær fluga silvur í búk systir Fröken Fancy og hefur reynst mér þá sérstaklega á vorin. Skemmtileg og viðbót í fluguflóru . Þríkrækja stærð 12-14. Á að vera í öllum Sörpum.

  • Drési

    kr.850

    Drési.

    Straumfluga hnýtt með gullbúk, svörtu fjöðrum úr hænu í tagli ásamt gliti, hvít hringvöf  og þyngd. Haus hot Orange. Á að vera í öllum Sörpum.
  • Laximus Faðmur.
    Nú er komin ný útgáfa af Laximus minni, nettari og hannaður sérstaklega fyrir Faðminn að sjálfsögðu úr silfri. Laxinn smíðaði og stílfærði Erling Jóhannesson gullsmiður fyrir Reiðu Öndina. Faðmurinn er úr leðri og fæst í nokkrum litum og bæði með öllum merkingum úr silfri eða eins og orginal Faðmur. Laximus kemur í leðurpoka úr íslensku sauðkindinni. Auðvitað sendir RÖ um land allt frítt.
    Aðeins takmarkað magn er um að ræða.
    Megi Laximus Lifa !
  • Armband úr trékúlum með stjörnumerkinu þínu

    Handgert armaband úr vönduðum trékúlum sem eru á teygju með stjörnumerkinu þínu. Armböndin eru til í þremur útgáfum einlit, blönduð og svört. Gert eftir máli.

  • Faðmur er málband sem veiðimaðurinn vefur um úlnliðin á sér og ber líkt og armband. Faðmurinn er til að mæla lengd fiska