-
-
Fröken Fancy
Frábær fluga chartreuse litur í búk systir Arndilly Fancy og hefur reynst mér vel allt sumarið. Skemmtileg og viðbót í fluguflóru . Þríkrækja stærð 12-14. Á að vera í öllum Sörpum.
-
Arndilly Fancy
Frábær fluga bjartur gulur litur í búk systir Fröken Fancy og hefur reynst mér vel allt sumarið. Skemmtileg og viðbót í fluguflóru . Þríkrækja stærð 12-14. Á að vera í öllum Sörpum.
-
Silfur Fancy.
Silver er fyrst undir á vorin hjá mér, ein af þessu sterku flugum sem kemur mér alltaf á óvart. Silfur búkur blátt skegg , appelsínugulur fasani í skotti glit svartur vængur og heitur applesínugulur í haus. Stærð 12-14 og á að vera í öllum veskjum og er góð viðbót í fluguflóru RÖ.
-
Black Goast
Er þekktari sem silungafluga en svínvirkar í laxi og virkar alltaf og á að vera í öllum veskjum. Svartur gulur og hvítur litur steinliggur. Svört þríkrækja stærð 10-12 .Skemmtileg og viðbót í fluguflóru RÖ.
-
Skull Græn.
Skull Græn er 8 cm þyngd fluga/trailer sem er í raun eftirlíking af seiði. Virkar á Lax, Sjóbirting og urriða. Best í miklu vatni eða lituðu vatni. Skemmtileg og viðbót í fluguflóru RÖ. -
Valbeinn þrí Gull.
Fluga gull krókur númer 14 sem reynist vel allt sumarið þá sérlega þegar vatnið fer að minka. Blái liturinn skapar Valbeinn svolítla sérsöðu virkar bæði á hæga rekinu og flott í strippið. Þríkrækja silfur sem til er í stærðum 14-16-18. Verður að vera í öllum fluguveskjum. -
Madeline Black
Seljast saman litla og minni. stærð 14 og 16. Frábær skilvirk yfirborðsfluga . Á að vera í öllum Sörpum. -
Drési.
Straumfluga hnýtt með gullbúk, svörtu fjöðrum úr hænu í tagli ásamt gliti, hvít hringvöf og þyngd. Haus hot Orange. Á að vera í öllum Sörpum. -
Silver Fancy
Frábær fluga silvur í búk systir Fröken Fancy og hefur reynst mér þá sérstaklega á vorin. Skemmtileg og viðbót í fluguflóru . Þríkrækja stærð 12-14. Á að vera í öllum Sörpum.
-
Kría stóri Hexi.
Kría stóri hexi 4,6 mm og litli 3,8.Hún er hnýtt með svörtu og hvítu hrossi í væng ásamt tveimur tegundum af gliti. Hexakónn rauður að hluta. -
Loftur
Loftur er straumfluga litli bróðir Þingeyjingsins þerri frábæru flugu. Hún er þyngd og samset úr sömu litum og Þingeyjingurinn. STÆRÐIR 2-4-6.