Flugur

  • Frosti

    kr.1,500

    Frosti.

    Hnýtt fyrir mikin veiðigarp. Bjartur perlu búkur hvít skegg ,  tví skiptur blár vængur með perlu angel hár í undirvængvængur, glit í væng og spegil blár haus. Stærð 12-14  og á að vera í öllum veskjum og er góð viðbót í fluguflóru RÖ.

  • Kobbi 3stk

    kr.1,950

    Kobbi.

    Seljast þrjár saman stærð 12-14 og kónn. Hér er enn ein flugan úr einkasafni sem varð til eftir samræður manna um flugur sem væru með koparlit. Fyrirmyndin var flugan Phatakorva sem hefur gefið þá marga stóra. Þessi fluga hefur einnig verið hnýtt með hot orange haus. Þetta  eru öflugar smáflugur, skemmtileg viðbót í fluguflóru RÖ.
  • Branda

    kr.850

    Branda

    Straumfluga sem virkar alltaf, silfur og svart sennilega algengustu litir í flugum almennt. Flugan er hnýtt á öflugan stuttan SE krók með Gryzzly og silfri í tagli. Búkur þyngdur og vafin með silfur Chenille, hringvöf svört hæna og svartur haus.
  • Stjáni Fjólublái

    Er fluga sem ég notaði/nota mikið í Sjóbirting, eins og menn vita ekki mikið notaður sá fjólublái við fluguveiðar. Þessi fluga er rosalega skæð, hnýtt á öflugan SE stuttan þyngdan krók með fjólubláum hana í tagli ásamt silfur gliti. Búkur fjólublátt chenille með hollo væng, hringvöf hvítur Hani og svartur haus. Stjáni kemur á óvart, alltaf.
  • Græna Perlan

    GP er falleg  og veiðin straumfluga, björt og virkar í öllum veðrum þyngd eða óþyngd stærðir S-M-L
  • Hálsrígur

    Stærðir 2-4
    Gömul og góð!
    Hér er ein gömul og góð fluga sem hefur reynst mér mjög vel þá sérstaklega í vorveiði þegar allt kraumar í greddu bæði á bakkanum og þegar í vatnið er komið. Hún heitir Hálsrígur vegna þess hvernig fiskarnir bregðast við þegar hún smellur á vatninu.
  • Mr Blue Sky

    Mr Blue Sky stærðir 10,12,14 og 16. Smelltu hér til að skoða fleiri flugur
  • Valbeinn Gull litli og stóri Hexi.

    Valbeinn stóri hexi 4,6 mm og litli 3,8þm.Hún er hnýtt með sæbláum perlubúk, svörtu hrossi í væng ásamt tveimur tegundum af gliti. Hexakónn.
  • Valbeinn Gára.

    Valbeinn Gára er frábær skilvirk 12mm hitchtúpa selst með krók frábær gáru og stripp fluga. Valbeinn gára er hnýtt á plaströr með gati fyrir tila að mynda gáru og einnig opinn í gegn ef menn vilja strippa, hún er til í þremur stærðum 9mm-12mm og 15mm. Á að vera í öllum Sörpum.
  • Valbeinn .

    Flaggskip RÖ. Fluga sem  reynist vel allt sumarið.  Blái liturinn skapar Valbeinn svolítla sérsöðu virkar bæði á hæga rekinu og flott í strippið. Tvíkrækja sem til er í stærðum 10-12-14. Verður að vera í öllum fluguveskjum.
  • Arndilly Fancy.

    Arndilly er fyrst undir hjá mér um hásumar , ein af þessu sterku flugum sem skilar alltaf sínu. Bjartur gulur búkur blátt skegg ,  svartur vængur og rauðurí haus. Stærð 12-14  og á að vera í öllum veskjum og er góð viðbót í fluguflóru RÖ.

  • Móa 3stk

    kr.1,950

    Móa

    Seljast þrjár saman stærð 12-14 og kónn. Hér er enn ein flugan úr einkasafni hnýtt með kampavínslituðum búk, hvít , svart hross í væng og glit. Virkar alltaf. Þetta  eru öflugar smáflugur, skemmtileg viðbót í fluguflóru RÖ.