Flugur

  • Spaða Ásinn

    Er fluga sem sömu litum en smá breytingum þó og fluga sem ég hef veitt mikið á og heitir Ece Spade . Sú fluga hefur sennilega gefið mér mestu urriðaveiði sem ég man eftir, þannig að hún er í miklu uppáhaldi hjá mér. Ég uppfærði hana aðeins og er sanngjarnt að kalla hana litla bróðir af ES. Flugan er þyngd, hnýtt á öflugan SE krók með svartri og brúnni hænu í tagli með silfur gliti. Búkurinn er svartur cenilleog holo vængur. Hringvöf er grár Gryzzly og svartur haus. Frábær straumfluga.
  • Móa

    kr.850

    Móa

    Móa er fluga sem á að vera í öllum fluguboxum. Stærðir 10,12,14,16. Smelltu hér til að skoða fleiri flugur
  • Valbeinn  þrí silfur.

    Fluga silfur krókur númer 16 sem  reynist vel allt sumarið þá sérlega þegar vatnið fer að minka.  Blái liturinn skapar Valbeinn svolítla sérsöðu virkar bæði á hæga rekinu og flott í strippið. Þríkrækja silfur sem til er í stærðum 14-16-18-20. Verður að vera í öllum fluguveskjum.
  • Valbeinn  tví svartur.

    Fluga svartur krókur númer 14  sem  reynist vel allt sumarið.  Blái liturinn skapar Valbeinn svolítla sérsöðu virkar bæði á hæga rekinu og flott í strippið. Tvíkrækja svört sem til er í stærðum 10-12-14. Verður að vera í öllum fluguveskjum.
  • Valbeinn .

    Valbeinn er áltúpa 9 cm. Hún er hnýtt með sæbláum perlubúk, svörtu hrossi í væng ásamt tveimur tegundum af gliti. Á að vera í öllum Sörpum.
  • Rauður Frances Hexi.

    Seljast saman litli Hexi 4,6 mm fyrir króka númer 16. Þetta er sennilega sú fluga sem er nú þegar í öllum veskjum eða boxum.
  • Rauður Frances Hexi.

    Seljast saman litli Hexi 3,8 mm fyrir króka númer 16. Þetta er sennilega sú fluga sem er nú þegar í öllum veskjum eða boxum.
  • Posh Tosh.

    Seljast saman litli og stóri. Skáskorin Posh Tosh hnýtt á plasttúbu með  hallow búk skær grænu skeggi, svörtum væng, skær grænu gliti og jungle cock. Frábær skilvirk yfirborðsfluga . Á að vera í öllum Sörpum.
  • Hrappur.

    Seljast saman litli og stóri. Skáskorin Hrappur hnýttur á plasttúbu með perlubúk skærgrænum undirlit og skeggi, svörtum væng og skærgrænu gliti. góð skilvirk yfirborðsfluga . Á að vera í öllum Sörpum.
  • Kría .

    Seljast saman litla og stóra. Skáskorin Kría hnýtt á plasttúbu með svörtum og hvítum væng úr hrosshárum , perlu- kopar gliti, svartur  og hot orange haus. Einföld, skilvirk og virkar alltaf. Á að vera í öllum Sörpum.
  • Eldibrandur

    Stærðir 2-4
    Þessi fluga varð til fyrir mörgum árum sennilega þegar maður var að veiða fyrir austan í Grenilæk, Tungufljóti og fleiri ám. Eins og menn sjá þá er hún samsuða af Rektor og Flæðamús sem var það sem gaf okkur sem þar veiddum mikið á þessum árum. Ég var búin að gleyma henni þessarri , það er eins og það er, en nú er hún endurfædd í 21 búning .Eldibrandur var upphaflega hnýttur á stóra streamera króka 2-4 sem var málið , en nú á þennan Predador krók .
  • Túttan

    kr.850

    Túttan

    Túttan er bæði til í einkrækju 6,8,10 og 12 . Tvíkrækju 10,12,14 og 16.