-
-
Móa
Móa er fluga sem á að vera í öllum fluguboxum. Stærðir 10,12,14,16. Smelltu hér til að skoða fleiri flugur -
Valbeinn þrí silfur.
Fluga silfur krókur númer 16 sem reynist vel allt sumarið þá sérlega þegar vatnið fer að minka. Blái liturinn skapar Valbeinn svolítla sérsöðu virkar bæði á hæga rekinu og flott í strippið. Þríkrækja silfur sem til er í stærðum 14-16-18-20. Verður að vera í öllum fluguveskjum. -
Valbeinn tví svartur.
Fluga svartur krókur númer 14 sem reynist vel allt sumarið. Blái liturinn skapar Valbeinn svolítla sérsöðu virkar bæði á hæga rekinu og flott í strippið. Tvíkrækja svört sem til er í stærðum 10-12-14. Verður að vera í öllum fluguveskjum. -
Valbeinn .
Valbeinn er áltúpa 9 cm. Hún er hnýtt með sæbláum perlubúk, svörtu hrossi í væng ásamt tveimur tegundum af gliti. Á að vera í öllum Sörpum. -
Rauður Frances Hexi.
Seljast saman litli Hexi 4,6 mm fyrir króka númer 16. Þetta er sennilega sú fluga sem er nú þegar í öllum veskjum eða boxum. -
Rauður Frances Hexi.
Seljast saman litli Hexi 3,8 mm fyrir króka númer 16. Þetta er sennilega sú fluga sem er nú þegar í öllum veskjum eða boxum. -
Posh Tosh.
Seljast saman litli og stóri. Skáskorin Posh Tosh hnýtt á plasttúbu með hallow búk skær grænu skeggi, svörtum væng, skær grænu gliti og jungle cock. Frábær skilvirk yfirborðsfluga . Á að vera í öllum Sörpum. -
Hrappur.
Seljast saman litli og stóri. Skáskorin Hrappur hnýttur á plasttúbu með perlubúk skærgrænum undirlit og skeggi, svörtum væng og skærgrænu gliti. góð skilvirk yfirborðsfluga . Á að vera í öllum Sörpum. -
Kría .
Seljast saman litla og stóra. Skáskorin Kría hnýtt á plasttúbu með svörtum og hvítum væng úr hrosshárum , perlu- kopar gliti, svartur og hot orange haus. Einföld, skilvirk og virkar alltaf. Á að vera í öllum Sörpum. -
Eldibrandur
Stærðir 2-4Þessi fluga varð til fyrir mörgum árum sennilega þegar maður var að veiða fyrir austan í Grenilæk, Tungufljóti og fleiri ám. Eins og menn sjá þá er hún samsuða af Rektor og Flæðamús sem var það sem gaf okkur sem þar veiddum mikið á þessum árum. Ég var búin að gleyma henni þessarri , það er eins og það er, en nú er hún endurfædd í 21 búning .Eldibrandur var upphaflega hnýttur á stóra streamera króka 2-4 sem var málið , en nú á þennan Predador krók . -
Túttan
Túttan er bæði til í einkrækju 6,8,10 og 12 . Tvíkrækju 10,12,14 og 16.